Jæja ok ég er mætt aftur. Verður maður ekki að nota þetta fyrst þetta er til. Ekki það að ég komi til með að gera það í þessari viku nema fá tölvuna hennar mömmu lánaða þar sem mín er að fara AFTUR í viðgerð. Spurning um að biðja um svona klippi kort sko og fá verðlaun fyrir hvert skipti sem ég mæti. Ég sver hversu mikið drasl er hægt að kaupa. Kannski er ég bara svona óheppin væri ekki hissa á því svo sum. Svo er maður svo pirraður yfir þessu, nýbúin að láta uppfæra hana þar sem hún HRUNDI auðvitað rétt eftir að fjandans ábyrgðin rann út. Ok búin að pústa nú að öðru
Ekki mikið að frétta stráksi er að byrja í skóla og það er voða gaman að sjá hvað hann er orðinn stór. EN gallinn er að þá er ég líka orðin stór og það er ekki eins gaman eða jú reyndar bara. Ef ég er ekki að fá munnræpu þá veit ég ekki hvað.
Fórum að týna ber í dag og komum heim með massa af krækiberjum smá bláber og sýnishorn af hrútaberjum sem mamma vildi endilega fá. Stráksi minn var voða duglegur að týna og alls ekki í botnlausu tunnuna. Fyndið að hundurinn vildi líka ber og fannst greinilega bláber betri því það var alltaf verið að reka hann frá. Jæja ætti ég kannski að fara koma mér í háttinn.
Fæ fráhvarfseinkenni þessa vikuna því eins og áður hefur komið fram er HELVÍTIS tölvu fjandinn klikk AGAIN ohhh verð svo pirruð. Svo þarf maður að bíða í alla vega 4 daga áður en þeir komast í að kikka á, auðvitað er mikið að gera hjá þeim en HEY ætti ég ekki að fá forgang sko svona eins og VIP kúnni??? Finnst það nottla ALLS ekki vitlaust því ég er eitt stórt egó er það ekki.